Stofnar Falla Lyrics

Samaris

Samaris

Lyrics to Stofnar Falla
Stofnar Falla Video:
Stofnar falla
Stráin sölna. Stofnar falla.
Stormur dauðans næðir alla.
Ljóselskandi, langanþrungið
lífið fyllir öll þau skörð,
sækir fram í sigurvissu.
Svo er strítt um alla jörð.
Stríðsmenn falla. Hetjur hníga.
Hjaðningum er stefnt til víga.
Aldrei verður sæst á sakir.
Sækja og verjast herjum tveim
sólskinsbörn og synir skuggans.
Svo er strítt um allan heim.
Tefld er drápskák tveggja herja,
tvíefld sókn og reynt að verja.
Öllu tjaldað: erfðaheimsku,
afturhaldi, þræladygð
móti þroskans sókn til sigurs.
Svo er strítt um alla byggð.
Fallinn er hann Fjögramaki,
fyrr sem lyfti Grettistaki.
Þó að hetja hnigi í valinn,
hefjum merkið fram skal stefnt.
Syrgjum ei, en söfnum liði.
Svo skal góðra drengja hefnt.
Örn Arnarson (Magnús Stefánsson)

(Thanks to mutiara azizah for these lyrics)
Songwriters:
Publisher:
Powered by LyricFind