Gerð úr Við Lyrics

Maus

Non-album songs

Lyrics to Gerð úr Við
Gerð úr Við Video:
hefur þú séð hvernig hlutir í dag eru án veruleika?

og allar gerfiþarfir meira virði en raunverulegar?

kannski ertu rétta stúlkan?

því þú virðist hafa galla.

ég vil færast nær þeim og læra að elska þá alla.



ég veit að það er skrítið,

að ég má allt sjá en ekkert fá.

og því finnst mér það óþarfi

að daður þitt hafi engin áhrif á mig...

því þú hefur ekkert að fela og ég finn löngunina dofna,

þú hefur ekkert meira að komast að og ég finn lostann minn sofna.



og svo kveiki ég

að þó ég óski í þig líf vantar takt,

sem kallast púls.

og ég finn galdurinn rofna,

og ég finn þig missa marks.

en ef að þú værir gerð úr við myndi ég snerta eitthvað ekta



en svona er það bara,

gerum allt ögn einfaldara,

taktu utan um mig,

því plastið festist við heitt skinn.

ég horfi svo djúpt inn í augun á þér

að mér finnst svipurinn breytast.

ef þú gætir fundið til,

þá þyrfti ég ekki að leika...



...en aldrei bráðna frá mér,

þó að ég bregðist þér.

ég vil bara að þú hlustir,

en segðu ekki neitt
Songwriters:
Publisher:
Powered by LyricFind